Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. júlí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að endurnýja þak, stækka kvist lítillega, stækka þakglugga til norðurs, breyta innra skipulagi í risi og breyta aðkomu að áður samþykktri íbúð í kjallara tvíbýlishúss á lóð nr. 78 við Efstasund. Erindi fylgir samþykki eigenda Efstasunds 76 og 80 og Langholtsvegar 83 ódagsett. Stækkun: 14,4 rúmm. Gjald kr. 11.000