Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. nóvember 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja hæð ofaná einbýlishús á lóð nr. 22 við Melgerði. Erindi fylgir samþykki lóðarhafa Melgerðis 24 vegna sorptunnuskýlis á lóðamörkum dags. 14. september 2017. Einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. ágúst 2017 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2017. Stækkun: 95 ferm., 515 rúmm. Eftir stækkun: 230,2 ferm., 840,2 rúmm. Gjald kr. 11.000