Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. apríl 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja rishæð með kvistum á þrjá vegu og gera þar sjálfstæða íbúð í húsi á lóð nr. 14 við Garðastræti. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 11. mars 2019 og 2. apríl 2019, einnig afrit af umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. janúar 2019 og samþykki meðeigenda dags. 25. mars 2019 og 22. mars 2019. Stækkun: 110,2 ferm., 33,7 rúmm. Gjald: kr. 11.200