Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. ágúst 2017 var lögð fram fyrirspurn Guðrúnar Jónasdóttur, mótt. 26. júlí 2017, um að að lyfta upp þakinu yfir mest allri íbúðinni í húsinu á lóð nr. 14 við Garðastræti og gera verönd (20-30m2) á suðurhliðinni. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. janúar 2019.