Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. ágúst 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. ágúst 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja nýtt anddyri úr tré klætt með stálklæðningu á norðurhlið og byggja sólskála á suðurhlið hússins og einnig er gerð grein fyrir gróðurhúsi, pöllum og heitum potti á lóð nr. 138 við Langholtsveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. september 2017 .
Stækkun anddyri og sólstofu: 30,8 ferm., 87,9 rúmm. Gjald kr. 11.000