Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. ágúst 2017 var lögð fram fyrirspurn Jóns Davíðs Ásgeirssonar, mótt. 21. ágúst 2017, um að stækka byggingarreit hússins á lóð nr. 47 við Grettisgötu, samkvæmt uppdr. Trípólí sf., ódags. Einnig eru lögð fram kynningargögn, ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. september 2017.