(fsp) uppbygging
Skektuvogur 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 680
11. maí, 2018
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. maí 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja til fimm hæða fjölbýlishús með 73 íbúðum á tveggja hæða bílgeymslu fyrir jafn marga bíla, steinsteypt, einangrað að utan og klætt málmklæðningu og flísum á lóð nr. 2 við Skektuvog.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. janúar 2018 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. janúar 2018. Stærð, A-rými: 6.976,1 ferm., xx rúmm. B-rými: 757,4 ferm. Gjald kr. 11.000
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

104 Reykjavík
Landnúmer: 225185 → skrá.is
Hnitnúmer: 10121069