Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. janúar 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. janúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt tveggja hæða tvíbýlishús með kjallara og innbyggðum bílskýlum, einangrað og klætt að utan á lóð nr. 20 við Lautarveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. janúar 2021.
Stærð, A-rými: 353,1 ferm., 1.188,6 rúmm. B-rými: 84,3 ferm., 267,6 rúmm. Samtals: 437,4 ferm., 1.456,2 rúmm. Gjald kr. 11.200