Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. janúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt tveggja hæða tvíbýlishús með kjallara og innbyggðum bílskýlum, einangrað og klætt að utan á lóð nr. 20 við Lautarveg. Stærð, A-rými: 353,1 ferm., 1.188,6 rúmm. B-rými: 84,3 ferm., 267,6 rúmm. Samtals: 437,4 ferm., 1.456,2 rúmm. Gjald kr. 11.200