Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. október 2017 var lögð fram fyrirspurn Vektor, hönnun og ráðgjöf ehf., mótt. 9. október 2017, ásamt greinargerð, dags. 5. október 2017, varðandi stækkun hússins á lóð nr. 34 við Sólvallagötu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 25. október 2017.