Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. september 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. september 2017 þar sem sótt er um leyfi til að breyta dagheimili í vistheimili í húsi á lóð nr. 7A við Völvufell. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. október 2017.
Gjald kr. 11.000