Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa dags. 16. ágúst 2019 var lögð fram fyrirspurn Friðriks Friðrikssonar dags. 7. ágúst 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 10 við Austurgerði. Breytingin felst í stækkun byggingareits til suðurs. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. ágúst 2019.