Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. janúar 2022 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN059285, þannig að frágangi lóðar er breytt, stoðveggir settir á milli húsa, bílastæðum fjölgað um 5 stæði, stiga er breytt og gluggum, auk þess sem eignum er fjölgað úr 6 í 7 einingar fyrir hvert hús og stærðir í skráningartöflu fyrir hvern mhl. aukast fyrir hús A, B og C á lóð nr. 19 við Bæjarflöt. Stækkun XX ferm., XX rúmm. Gjald kr.12.600