Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. apríl 2018 var lögð fram umsókn Sigurðar Hallgrímssonar ehf. dags. 11. apríl 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Gylfaflatar suður vegna lóðarinnar nr. 19 við Bæjarflöt. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit til austurs, samkvæmt uppdr. Arkþings ehf. dags. 11. apríl 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs. Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.