Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. apríl 2019 var lögð fram fyrirspurn Hildar Ýrar Ottósdóttur dags. 29. mars 2019 um hækkun á þaki hússins á lóð nr. 23 við Tómasarhaga og breytingu á þakformi, samkvæmt uppdr. Ydda arkitekta ehf. dags. 29. mars 2019. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. apríl 2019.