Lögð fram umsókn Arons Inga Óskarssonar dags. 18. mars 2022 um skiptingu lóðarinnar Reykjavíkurvegur 31 í tvær lóðir nr. 31 og 31B. Einnig er lagt fram, bréf Landupplýsingadeildar dags. 20. janúar 2022, breytingablað umhverfis- og skipulagssviðs dags. 20. janúar 2022, lóðauppdráttur dags. 20. janúar 2022, afsalsbréf dags. 24. október 1964 og skiptasamningur dags. 8. júní 1989.
Svar
Vísað til skipulags- og samgönguráðs. Vakin er athygli á að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1551/2021, áður en lóðaruppdrætti er þinglýst.