Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. mars 2018 var lögð fram fyrirspurn Lindu Kristjánsdóttur dags. 7. mars 2018 um að setja aðra innkeyrslu á lóð nr. 8 við Skeljanes, samkvæmt skissu ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. apríl 2018.