Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. mars 2018 þar sem sótt erum leyfi til að byggja þriggja til fimm hæða fjölbýlishús með 41 íbúð, þriggja hæða raðhús með 5 íbúðum og bílgeymslu sem er að hluta niðurgrafin með 42 stæðum á lóð nr. 1 við Trilluvog. Erindi fylgir brunahönnun dags. 13. mars 2018 og hljóðvistarskýrsla dags. 6. mars. 2018 og bréf Vogabyggðar dags. 15. mars 2018. Stærð, A-rými: 5.332,2 ferm., 19.145,3rúmm. B-rými: 1.460,4 ferm., 5.210,4 rúmm. Gjald kr. 11.000