Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. júní 2021 þar sem spurt er um leyfi til að stækka íbúðina á annarri hæð til suðurs í húsi nr. 12 á lóð nr. 12 við Hörgshlíð. Stækkun er: ótilgreind. Erindi fylgir skýringarmyndir fyrirspyrjanda, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 11. júlí 2017 og svar Minjastofnunar vegna fyrirspurnar í tölvupósti dags. 26. maí 2021.