Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. október 2021 þar sem sótt er um leyfi til að koma fyrir nýju vindfangi, gera þakglugga og svalir á rishæð og 2. hæð, með stiga niður í garð, á suðausturgafli auk þess sem innra skipulagi hæða er breytt í húsi og bílskúr 0102 er breytt í vinnustofu/geymslu á lóð nr. 18 við Hrísateig. Stækkun vegna vindfangs er: 2,8 ferm., 11,0 rúmm. Gjald kr. 12.100