Lögð fram umsókn Richards Ólafs Briem dags. 12. desember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Seljahverfis vegna lóðarinnar nr. 29 við Ljárskóga. Í breytingunni felst að gerður er byggingarreitur fyrir sérstæða, tvöfalda bílageymslu í suðvesturhorni lóðarinnar og að breyta núverandi innbyggðri bílageymslu ásamt geymslurými á jarðhæð í íbúð, samkvæmt uppdr. VA arkitekta ehf. dags. 14. nóvember 2018.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.