Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. janúar 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu til austurs ásamt því að breyta innra skipulagi í einbýlishúsi á lóð nr. 3 við Drafnarstíg. Erindi var grenndarkynnt frá 4. febrúar 2022 til og með 4. mars 2022. Engar athugasemdir bárust.