Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. nóvember 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. nóvember 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu til austurs ásamt því að breyta innra skipulagi í einbýlishúsi á lóð nr. 3 við Drafnarstíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. desember 2021.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 27. júlí 2021. Stækkun: 70,2 ferm., 224,5 rúmm. Gjald kr. 12.100