Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. maí 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. maí 2019 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í kjallara, koma þar fyrir snyrtingum fyrir gesti og breyta í veitingastað í flokki I og II í húsi á lóð nr. 15 við Skólavörðustíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. maí 2019.
Gjald kr. 11.200