Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. júní 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. júní 2018 þar sem sótt er um leyfi til að útbúa þaksvalir á neðra þak byggingar og endurnýja svalahandrið á húsinu á lóð nr. 14 við Sjafnargötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. júní 2018.
Gjald kr. 11.000