Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Fjölnisvegi 13 og 15 og Sjafnargötu 12.
Grenndarkynningin er stytt þar sem samþykki lóðarhafa Fjölnisvegi 13 og 15 og Sjafnargötu 12 liggja fyrir, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.