Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. nóvember 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja hæð ofaná hús, byggja svalir og utanáliggjandi stigahús, skipta húsi í tvær eignir og innrétta geymslur í bílskúr húss á lóð nr. 11 við Ásveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. júlí 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. júlí 2018. Stækkun: 70,2 ferm., 154,3 rúmm. Stærð húss eftir stækkun: 210,6 ferm., 447,1 rúmm. Gjald kr. 11.000