Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. júní 2018 þar sem spurt er hvort leyft yrði að lækka jarðveg á vesturhlið húss í sömu hæð og er á norðurhlið byggingarinnar og bæta við tveimur gluggum á vesturhlið húss á lóð nr. 11 á lóð nr. 5-11 við Mýrarsel. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. júní 2018.