Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. júní 2020 var lögð fram fyrirspurn Berglindar Árnadóttur dags. 26. maí 2020 um að hækka mænir hússins á lóð nr. 14 við Haðarstíg og setja kvisti á hvora hlið, setja svalir á 1. hæð hússins, stækka glugga á suðausturhlið í kjallara og endurskipuleggja rishæð, samkvæmt uppdr. Studio F ehf. dags. 25. maí 2020. Einnig er óskað eftir samþykkt á áður gerðum breytingum á innra skipulagi í kjallara og á 1. hæð ásamt ísetningu á glugga og hurð sem snýr að garði. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. júní 2020.