Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. mars 2019 var lögð fram fyrirspurn
EON arkitekta ehf.
dags. 22. júní 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar að Grandagarði 8 um hækkun og stækkun hússins í samræmi við meðfylgjandi uppdrætti
EON arkitekta ehf.
dags. 15. júní 2018 og greinargerðir dags. 20. júní 2018. Einnig er lagður fram tölvupóstur frá fyrirspyrjanda dags. 13. september 2018 og svarpósti skipulagsfulltrúa dags. 14. september 2018. Jafnframt er lagður fram skýringaruppdr.
EON arkitekta ehf.
dags. 16. janúar 2019. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar Faxaflóahafna og samgöngustjóra Reykjavíkurborgar og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dags. 14 og mars 2019. Einnig er lagður fram tölvupóstur Eggerts Árna Gíslasonar f.h. Breimbarða ehf. dags. 10. febrúar 2020 þar sem fyrirspurn er dregin til baka.