Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. janúar 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt þrílyft atvinnuhúsnæði, einangrað að utan, á lóð nr. 7 við Lambhagaveg. Lagður fram tölvupóstur frá embætti byggingarfulltrúa dags. 13. febrúar 2019 þar sem umsagnarbeiðni er dregin til baka.
Stærðir: 4.246,7 ferm., 22.273,5 rúmm. Erindinu fylgir greinagerð arkitekts ódagsett og útreikningur á orkuramma dagsettur 20. desember 2018. janúar 2019. Gjald kr. 11.000