Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. júlí 2018 var lögð fram fyrirspurn Sigurðar Hallgrímssonar dags. 4. júlí 2018 varðandi uppbyggingu á lóð nr. 7 við Lambhagaveg sem felst í að byggja 3. hæða hús á lóðinni, samkvæmt teikningum ódags. Í húsinu verði sýningarsalur/söluskrifstofa, skrifstofur og framleiðsla. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. ágúst 2018.