Bílageymsla forsteyptum samlokueinginum
Hörgshlíð 10
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 737
19. júlí, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa dags. 5. júlí 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. júlí 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílageymslu með forsteyptum sökklum og samlokuveggjum ásamt geymslu og snyrtingu á lóð nr. 10 við Hörgshlíð. Einnig eru lagðir fram aðaluppdrættir Al-hönnunar ehf. dags. 15. júní 2019 og skuggavarpsuppdrættir dags. 16. júlí 2019.
Stærð mhl. 02: 100,4 ferm., 372,8rúmm. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. ágúst 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. maí 2019. Gjald kr. 11.000 Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hörgshlíð 8, 12, 14.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkvæmt gr. 8.1. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

105 Reykjavík
Landnúmer: 107335 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023168