Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. maí 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílageymslu með forsteyptum sökklum og samlokuveggjum ásamt geymslu og snyrtingu á lóð nr. 10 við Hörgshlíð. Stærð mhl. 02: 100,4 ferm., 372,8rúmm. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. ágúst 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. maí 2019. Gjald kr. 11.000