Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. febrúar 2019 var lögð fram fyrirspurn Steinunnar Rósu Einarsdóttur dags. 4. febrúar 2019 um breytingu á deiliskipulagi Heimahverfis vegna lóðarinnar nr. 109 við Skeiðarvog sem felst í að gera byggingarreit fyrir 40 fm. smáhýsi á lóð, samkvæmt kynningargögnum. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2019.