breyting á skilmálum deiliskipulags
Rökkvatjörn 6-8
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 870
31. maí, 2022
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Ásgeirs Ásgeirssonar dags. 23. maí 2022 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Úlfarsárdals vegna lóðarinnar nr. 6-8 við Rökkvatjörn. Í breytingunni felst að heimilt er að svalir á suðurhlið hússins skagi út fyrir byggingarreit lóðarinnar, samkvæmt tillögu dags. 12. apríl 2022.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1551/2021.