Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. febrúar 2022 var lögð fram fyrirspurn Ásgeir Ásgeirsson dags. 15. desember 2021 ásamt bréfi dags. 14. desember 2021 um breytingu á skilmálum deiliskipulags Úlfarsárdals vegna lóðanna nr. 6-8 við Rökkvatjörn sem felst í að heimilt verði að svalir á sunnanverðu fari 800 mm út fyrir byggingarreit. fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. febrúar 2022.