Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Magnúsar Jenssonar dags. 20. maí 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna lóðarinnar nr. 32 við Urðarbrunn. Í breytingunni felst að innkeyrsla sunnanmegin á lóð færist norðanmegin, samkvæmt uppdr. Magnúsar Jenssonar dags. 20. maí 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 6. september 2019 til og með 4. október 2019. Engar athugasemdir bárust.