Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. september 2018 var lögð fram fyrirspurn Magnúsar Alberts Jenssonar dags. 9. september 2018 ásamt greinargerð dags. 8. september 2018 um breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna lóðarinnar nr. 32 við Urðarbrunn sem felst í breytingu á staðsetningu innkeyrslu á lóð og minna byggingarmagn. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. október 2018.