Lögð fram umsókn
Veitna ohf.
dags. 24. september 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Stekkjarbrekkur/Hallsvegur suður vegna lóðarinnar nr. 12A við Lambhagaveg. Í breytingunni felst að lóð fyrir spennistöð er stækkuð úr 16 fm. í 35 fm. ásamt því að vera flutt til norðvesturs vestan við lóðamörk Lambhagavegs 14, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 28. nóvember 2017.
Svar
Vísað til skipulags- og samgönguráðs. Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 8.2 , sbr. 12.. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.