Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. júní 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 31. maí 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tvíbýlishús, tvær hæðir og kjallara úr timbri á steyptum sökkli með tveimur íbúðum á lóð nr. 9A við Vitastíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. júlí 2022.