Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. febrúar 2019 var lögð fram fyrirspurn Halldórs Hreinssonar dags. 25. nóvember 2018 um að færa bílskúr á lóð nr. 4 við Kambsveg ca. 8 metra aftar á lóð, samkvæmt skissu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. febrúar 2019.