Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. nóvember 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. nóvember 2018 þar sem sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi á lóð sem felst í breikkun vegar við norðvesturenda húss á lóð nr. 10 við Gufunesveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. janúar 2019.
Gjald kr. 11.000