Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. desember 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. desember 2018 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í kjallara sem hefur fastanúmerið 2023463 í húsi á lóð nr. 165a við Langholtsveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. janúar 2019.
Gjald kr. 11.000