Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. ágúst 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. júlí 2019 þar sem sótt er um leyfi til að gera svalahurð á herbergi 2. hæðar og léttan flóttastiga á norðurhlið húss á lóð nr. 29 við Langholtsveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. ágúst 2019.