Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. janúar 2019 var lögð fram fyrirspurn Þórhalls Arnar Hinrikssonar dags. 8. janúar 2018 um að breyta einbýlishúsi á lóð nr. 60 við Smárarima í tvær íbúðir. Einnig er lagt fram samþykki meðeiganda ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. janúar 2019.