Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. janúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN056152 vegna lokaúttektar, sem felst meðal annars í því að byggingarlýsing hefur verið uppfærð, innra skipulagi, útliti og efnisvali stigahandriðs er breytt ásamt breytingum á lóðafrágangi við raðhús nr. 26-32 á lóð nr. 26 við Silfratjörn. Erindi fylgir bréf frá hönnuði dags. 9. desember 2020 og yfirlit breytinga á afriti af samþykktum uppdráttum. Gjald kr. 11.200