Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. febrúar 2019 var lögð fram fyrirspurn Inga Brynjars Erlingssonar dags. 22. janúar 2019 um að setja íbúðarherbergi í kjallara hússins nr. 35 á lóð nr. 31-43 við Melbæ með sér fasteignanúmeri. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. febrúar 2019.