Lagt fram bréf Samgöngustofu dags. 8. febrúar 2019 þar sem óskað er eftir umsögn vegna leyfis Vilmundar ehf. til reksturs ökutækjaleigu með gildistíma frá 7. júní 2016. Verið er að flytja starfsemi ökutækjaleigunnar frá Krókhálsi 4 að Eyjarslóð 9. Sótt er um þrjú ökutæki í útleigu á starfstöð á Eyjarslóð.