Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa frá 22. febrúar 2019 var lögð fram fyrirspurn Sverris J. Norðfjörð dags. 17. febrúar 2019 ásamt greinargerð ódags. um að hækka þak hússins á lóð nr. 8 við Hrefnugötu og setja kvist. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. mars 2019.